Ef ekki kviknar á skjánum í Teslabílnum eða slokknar á honum öðru hverju eða þér tekst ekki að setja bílinn í Aksturs-, Hlutlausa- eða Stöðustillingu, fylgdu eftirfarandi skrefum.
Fyrir Model 3 og Model Y
Styddu á og haltu inni báðum skrunhjólunum hvorum megin á stýrishjólinu í allt að 10 sekúndur. Þá endurræsist aðal/miðskjárinn. Á meðan hann er að endurræsast gæti loftpúðatáknið birst í mælaborðinu og þú heyrt smelli.
Fyrir Model S og X
Fyrir mælaborð/skjá ökumanns þrýsti á og haltu inni bátum hnöppunum ofan við skrunhjólin hvorum megin á stýrishjólinu í allt að 10 sekúndur. Gefðu þessu smástund og mælaborð/skjár ökumanns endurræsist.
Með því að halda niðri skrunhnöppunum tveim á stýrishjólinu getur þú endurræst stóra 17-tommu skjáinn.