Oft erum við að skrifa skjöl í vinnubók með svipuðu sniði. Þá getur verið gott að sækja sér "grunn" að skjali, eða þegar vistað sniðmát. Þannig fáum við samræmt útlit og getum komið í veg fyrir að eitthvað fari úrskeiðis með útlit eða prentun skjala.
Með því að setja upp mismunandi skjalsnið sem henta þinni starfsemi og kenna ritstjórum að nýta þau færðu betri framsetningu skjala – samræmt útlit skjala sem líta faglega út, á skjá sem og útprentuð.
Gæðahandbókarstjóri getur búið til ný sniðmát til notkunar.
⚠️ Mikilvægt að hafa í huga við gerð sniðmáta
Forðastu að afrita texta úr öðrum skjölum beint inn í sniðmátið. Slík afritun getur tekið með sér faldar stillingar — leturgerð, leturstærð og ýmis snið sem augað ekki sér en geta valdið vandræðum síðar við uppfærslur á skjalinu. Skjalsnið er ætlað til að vera notað aftur og aftur í skjölum, svo best er að búa það til frá grunni með eigin stillingum.
Hér er stutt myndskeið sem sýnir hvernig á að setja upp sniðmát fyrir gæðahandbók.