Þjónustuborð CCQ aðstoðar notendur með allt sem viðkemur CCQ. Hægt er að stofna beiðnir sem varða ábendingar, tæknilega aðstoð, ráðgjöf, tillögur að nýjungum og tilkynningar um frávik á þjónustusíðu hér eða senda póst með erindi á netfangið support@ccq.cloud. Stefnt er að því að svara beiðnum innan sólarhrings. Einnig má hafa samband með spjalli á heimasíðu CCQ.
Til þess að notendur geti notað þjónustusíðuna og stofnað beiðnir þurfa þeir að skrá sig í upphafi. Mjög einfalt er að skrá sig, einungis þarf að gefa upp póstfang og velja lykilorð eða nota microsoft single sign on þar sem það á við.
Origo og CCQ taka upp nýja þjónustugátt þann 20. maí 2026.
Skoðaðu myndskeiðið hér að neðan til að kynna þér það.