Ekki þarf lengur CCQ Kerfisstjóraréttindi til að hafa fullan aðgang að uppsetningu og stillingum fyrir Ábendingar. Komið er nýtt hlutverk, CCQ Ábendingastjóri sem gefur þessi réttindi en þau einskorðast við ábendingaeininguna.
Til að veita réttindin er farið undir Stillingar - Aðgangur - Notendur og notandi valinn úr listanum. Undir flipanum Heimildir er hakað við Ábendingastjóri (e. Incidents Administrator) og skjalið vistað.
Ef fyrirtæki notar SSO fyrir innskráningu bendum við á nánari leiðbeiningar í hlekkjunum hér að neðan, en í stuttu máli þarf að velja hóp eða búa til nýjan í Active directory fyrir þetta hlutverk og ganga frá nauðsynlegri skráningu þeim megin í tengingu til CCQ. Og að lokum skrá nýja hópinn í í viðeigandi aðgangsreit (Ábendingastjóri) í fyrirtækjaskjali CCQ, undir Stillingar - Aðgangur - Fyrirtæki á flipanum Aðgangur