Fyrirtæki velur sér sjálfgefna leturgerð og stærð fyrir textaritilinn í CCQ. Ný skjöl eru þá búin til með því sniði.
Það er þó algengt að notendur afriti texta úr öðrum kerfum eða af vefsíðum og þá geta fylgt með aðrar stýringar fyrir texta en sjálfgefin leturgerð og stærð.
Skoðaðu myndskeiðið fyrir leiðir til að hreinsa sértæka stíla úr texta. Hér er farið yfir hreinsun feitletrunar, hreinsun leturþyngdar (font-weight), hreinsun leturgerðar yfir í sjálfgefna leturgerð og hreinsun leturstærðar yfir í sjálfgefið stærðarval.