Við gerð gæðaskjals í CCQ er hægt að útnefna þá starfsmenn sem þurfa að staðfesta lestur á skjalinu við útgáfu. Þannig er tryggt að starfsmenn þekki og vinni eftir nýjustu verkferlum.
Viðkomandi starfsmenn fá senda tilkynningu um útgefið skjal og þegar þeir hafa lesið það yfir, geta þeir staðfest lestur og skilning á innihaldi skjalsins með því að smella á þar til gerðan staðfestingarhnapp.
Séu notaðir hópar til að tilgreina þá sem þurfa að staðfesta lestur á skjölum, fer kerfið að auki yfir hvort nýir aðilar bætast í hópinn og sendir þeim þá póst með krækju í þau skjöl sem þarf að staðfesta lestur á.
Að bæta notanda í skjal til að staðfesta lestur
Að bæta notanda við í útgefið skjal
Að bæta við hóp
Að bæta notendum í hóp
Að staðfesta lestur - notendur
Að staðfesta lestur - stjórnendur